24.5.08

Sjiiiiiiiit

hvað það er nú leiðinlegt að enda vetrarvertíðina svona. Rannsóknarskip er á hraðri leið að fá óteljundustu streptókokkana í vetur. Ég ætla að senda hann á læknavaktina þegar hann verður búinn að leggja sig. Ég hefði viljað panta lækni til að koma og hlusta og kokkaprófa allt liðið, en það tekur nú húsbóndinn ekki í mál. Svo hann fær þá bara að fara einn, huxanlega með Freigátuna með sér, en hún er komin með einhverja hitavellu sem ég veit ekki hvernig fer í nýteknu kirtlana eða eyrað sem var "hleypt úr" við sama tækifæri. (En hún þurfti ekki að fá rör í eyrun.)

Ég er ennþá alveg eins og aumingi og við Hraðbátur hóstum í kór. En ég nenni ekki að fara með hann í einhverjar pestanámur í þessu ástandi. Er ennþá að vona að við bötnum af sjálfum okkur. Sem er kannski bjartsýni þar sem við erum búin að vera veik lengst, eða síðan á mánudag.

Smábáturinn ætlaði að vera í einhverju kirkjustarfssulli um helgina, en því var aflýst svo hann var sendur norður með engum fyrirvara í gær og ætlaði að vera viðstaddur þriggja ára afmælið hennar Kamillu systur sinnar í dag. Hann sleppur þá vonandi við þessa pest líka.

Og svona höfum við það nú, síðustu helgina okkar í Reykjavíkinni þangað til einhvern tíma í ágúst. Hóstandi og frísandi yfir júróvísjón. Um þá næstu verður brunað vestur á firði á ættarmót, svo þá er nú eins gott að allir verði orðnir frískir og hraustir. Helgina það á eftir er síðan planið að Smábátur verði kominn norður, Rannsóknarskip í Svarfaðardalinn að læra leikritun og ég með ormana austur.

En nú held ég við þurfum að panta pensíllín á línuna. En vonandi það síðasta á þessum vetri.

23.5.08

Karir

Er að skríða eitthvað saman, eftir að hafa sofið í um sólarhring. Hraðbáturinn er líka að byrja að jafna sig. En Rannsóknarskip er á niðurleið. Og fyrst ég þurfti að sofa í sólarhring, þá þarf hann líklega að sofa í viku og fá pensillín, við sömu veiki. Ojoj.

En litla kirtlalausa daman virðist alveg fílhraust.

Og svo komumst við bara áfram í Júróvísjón! Við urðum nú eiginlega bara hissa. Og ekki bara við, allar Norðurlandaþjóðirnar! Líka þær sem voru með ÖÖÖÖmurleg lög!
Nú held ég við verðum að hætta að kvarta yfir klíkuhætti suðaustur Evrópu...

22.5.08

Ungfrú Ákveðin

Ég er í verkefninu að láta Freigátuna ekki borða neitt áður en hún fer í nefkirtlatökuna. Sem er ekki fyrr en um ellefuleytið. Gengur ennþá vel, en klukkan er nú bara hálfníu. Og herra Jútúb hefur haldið henni við efnið hingað til. Hún er orðin húkkt á myndböndum með Tiny Toons og They Might Be Giants. (Og tónlistin er meira atriði en teiknimyndirnar.) Og hvert lag þarf að spila svona 10 sinnum í röð, svo þetta er hinn ágætasti tímaþjófur.

Fleira ættgengt. Úr móðurættinni virðist hún vera að byrja að fá fatasérviskur. Um daginn var gerð mikil leit að Latabæjarbolnum þar sem hann var eini bolurinn sem var að marka þann daginn. Í gærkvöldi kom Hugga frænka færandi hendi með nokkra alklæðnaði frá Manchester...

Í þeim orðum skrifuðum náði drepsóttin Móðurskipinu á sitt vald. Freigátan er eins og ekkert hafi í skorist eftir aðgerðina, en Móðurskipið er eins og það hafi verið lamið í hausinn með hamrinum úr síðustu færslu.

Ööööömurlegt. Og það á júródegi.


21.5.08

Horflutningar

�� morgun fer Freig��tan (vonandi) �� nefkirtlat��ku. Og ��g er a�� ��mynda m��r a�� ���� h��tti h��n a�� vera me�� st����ugt horstreymi. Undanfarna daga er h��n b��in a�� vera �� pensill��ni til a�� ��urrka upp horfossinn fyrir a��ger��. Enda er h��n b��in a�� vera svo ����g og r��leg undanfarna daga a�� ��g er alltaf a�� athuga hvort h��n er me�� hita.

En au��vita�� er heimili�� ekki horlaust.Vi�� Hra��b��tur erum n��na �� ����rum e��a ��ri��ja degi �� "veiki". Ekkert alvarlegri, samt. ��g er lufsuleg og hann sefur ��venjumiki�� (sem ������ir a�� hann vaknar n��stum aldrei) �� milli ��ess sem hann h��star og frussar. Vi�� sv��fum eitthva�� illa �� n��tt, en ��g er a�� vona a�� ��etta fari n�� a�� sk��na. Hann er annars farinn a�� vera vo��a duglegur a�� sko��a hendurnar s��nar og finnst t��rnar s��nar ��a�� fyndnasta �� heimi. Svo f��kk hann p��nul��tinn graut �� g��rkv��ldi og l��t bara vel af honum.

Og svo myndir:

Fri��rik og s��tu stelpurnar sem komu a�� heims��kja hann �� s����ustu viku. Gu��laug N��a Siggud��sar og Einsa d��ttir til vinstri og Kar��tas Bl��ey ��stu Krist��nar og Kjartansd��ttir til h��gri.

Svona leit eldh��sbekkurinn ��t eftir a�� Ranns��knarskip var b��inn a�� elda hv��tasunnumatinn. ��rifi�� virka��i f��nt �� s��suna.

Um daginn voru s��nd leikrit eftir okkur b����i �� s��mu dagskr��. B����i voru fantavel unnin fr�� hendi uppsetjara. En hans var talsvert betur skrifa�� en mitt.

20.5.08

Arg!

Ég ætti að vera að taka til hérna. Það er ennþá eins og eftir sprengjuárás og þungfært inn í flest herbergi. En röðunaráráttan er að fara með mig. Úr bókaskipulögnum lenti ég í DVD-skipulagnir og þaðan í myndasafnið í tölvunni. Og hef þar með algjörlega yfirgefið sjáanlega tiltekt. En myndamál eru stödd í langtímavandamáli.

Átján mánaða birgðir af myndum bíða prentunar. Mér finnst best og þægilegast að láta hann Hanspétursson bara sjá um þau mál fyrir mig.

En.

Myndirnar eru í gíslingu í makkanum. Það sem ég hef valið til prentunar telur nú 1,52 GB. Makkinn talar ekki við framköllunarsendingarforritin af hanspedersen.is. Og Safari talar ekki við Safnið hjá Símanum. Ég ætlaði að senda myndafarganið yfir í PC til að geta notað annaðhvort, en, ég finn ekki útúr því, hvernig sem ég leita, hvernig ég zippa dæmið í makkanum. Og ég nenni ekki að tutla þetta í gegnum pósta í einhverjum smáskömmtum.

Svo fékk ég þá snilldarhugmynd að brenna þær bara á disk,

En.

Á ekki nógu stóran disk.

Ég held að dagurinn fari bara í þetta...

Fyrir svo utan að þegar mér text að láta prenta þessar umþaðbil þúsund myndir, þá á eftir að raða í albúm. Til er eitt til tvö tileinkuð hverju barni og raðað er í eftir mismunandi reglum kúnstarinnar, og fyrirliggjandi eru ýmsar samsetningar til að færa ömmum og frænkum.
Úff. Spurning um að gefa bara út eina myndabók árlega, lítið með vandlega völdum myndum, og láta fylgja jólagjöfum til amma og frænkna, ár hvert.

Hei, þetta var góð hugmynd! Og alveg framkvæmanleg!
(Sagði konan sem nennir ekki einu sinni að senda jólakort.)

19.5.08

Tiltektir

Eins gott að ég endaði síðast á góðri og langri sögu. En heimilið er allt á öðrum endanum. Smábátur hefur eignast mubblu sem tók um 24 klukkustundir að smíða og verður seld með íbúðinni þegar við förum héðan. Ég held allavega að Rannsóknarskip þverneiti að skrúfa dæmið í sundur aftur, þó það verði ekki fyrr en eftir mörrrrg ár.

Bezt að byrja á byrjuninni. Takk fyrir skemmtunina á föstudaxkvöld, allir sem komu nálægt mér og skemmtu mér þá. Auðvitað er það síðan þannig að þegar maður fer svona örsjaldan út úr húsi þá hefur maður ekki tíma til að tala við neinn eins mikið og mann langar. En það stendur nú allt til bóta, svona einhverntíma uppúr fertugu eða fimmtugu.

Semsagt, heimilið er enn eins og varpað hafi verið á það kjarnorkusprengju, aðallega vegna þess að ég fékk smámunakast og er að endurskipuleggja staðsetningar á öllum bókum heimilisins. En það er alveg slatti. Og þá finnur maður nú ýmislegt. Inni í gamalli minnisbók fann ég eftirfarandi:
- Alla leikdómana sem skrifaðir voru um sýninguna Fáfnismenn hjá Hugleik 1995.
- Félagatal Hugleiks veturinn 1994-1995.
- Skilaboð frá Hildi Völu sem skrifuð eru á bréfsnepil og hefst á orðunum: Þið með ykkar ógeðslegu persónutöfra. Ég vona að þið hafið skemmt ykkur vel helv... t.... ykkar...
- Þagnareiður sem íbúar ákveðinnar íbúðar á nefndu hóteli í Portúgalsríki í tiltekinni viku árið 1993 hafa allir undirritað og vonandi allir haldið!!! Viðurlög við rofi eru að bjóða öllum öðrum íbúum sömu íbúðar í ferð til Portúgal í mánuð.

Það getur nú verið alveg stórgaman að taka til.

En það er orðið nokkurn veginn fært um alla íbúð. En í dag er tiltektardagur úti og í sameigninni, svo ég er enn á smábarnavaktinni. (Sem er það sem ég var aðallega að gera um helgina á meðan smíðar stóðu yfir.) Og nú sýnist mér Hraðbáturinn vera að rumska, svo þar með er þetta blogghlé yfirstaðið.

16.5.08

Sagan af því hvernig ég varð næstum innfæddur Hugleikari... en samt ekki

Förum aftur í tímann.

Árið er um það bil 1960.
Afi minn og amma búa á Hallfreðarstöðum í Hróarstungu en hafa ákveðið að bregða búi og flytja í þéttbýli. Vinur afa vill endilega fá hann til Reykjavíkur. Afi minn var mikill skapmaður og kommúnisti og blótaði meira en flestir aðrir til samans. Amma var hins vegar, og er, mesta skapgæðakona sem aldrei mælti styggðaryrði við eða um nokkurn mann. En þegar hún var þversum fór nú enginn langt með hana. Og nú sneri hún þvert og alveg þverneitaði að flytja til Reykjavíkur. Hún vildi ekki fara hænufeti lengra en í Egilsstaði, og hananú.

Svo var nú ástatt um Egilsstaðakauptún á þessum tíma að þar stóðu ekki nema kannski um tuttugu hús, en þau hýstu starfsfólk mjólkurstöðvarinnar og heilsugæslustöðvarinnar. Afi var búinn að leita af sér allan grun. Og fann ekki út að það væri svo mikið sem fermetri aflögu til búsetur í Egilsstaðakauptúni. Svo hann lagði af stað út á flugvöll, en þar var almenningssími. Hann ætlaði að hringja í vin sinn fyrir sunnan og segja honum að þau myndu koma, en sá var sterkefnaður og hefði líklega getað greitt götu þeirra bæði varðandi húsnæði og atvinnu í höfuðstaðnum.

Þegar afi var á Nesinu, eins og vegurinn út á flugvöll er kallaður enn í dag, kom á eftir honum bíll með miklum fyrirgangi, ljósablikki og flautuþeytingum. Var þar kominn maður sem vildi endilega leigja afa hálfa hæð. Sem afi og amma urðu seinna eigendur að. Og enn seinna meira að segja allri hæðinni. Svo það varð úr að þau fluttu til Egilsstaða með kjördóttur sína á unglingsaldri. Afi fór að vinna í mjólkurstöðinni og amma á heilsugæslustöðinni.

Förum enn aftar í tímann.

Það er sirkabát fjórði áratugur tuttugusta aldar.
Á Kirkjubæ í Hróarstungu situr hann séra Sigurjón. Konan hans heitir Anna. Hún setur upp leikrit á hverju vori. Fólk situr í kringum borð og skrifar niður rullurnar sínar, þar sem þetta er lönnnngu fyrir tíma ljósritunarvéla. Þar er hún Sigga, amma mín, á unglingsaldri. Einhvern tíma leikur þar líka hann Nonni Geiri, svonefndur þar sem hann heitir Jón og er frá Geirastöðum. Prestsonurinn, hann Sindri, er stundum brúkaður í að skrifa upp rullur, en tekur annars lítinn þátt í leiklistarbröltinu.

Á sama tíma er afi minn nemandi í Alþýðuskólanum á Eiðum og tekur þátt í leiksýningum þar.

Sigga amma á samnefnda frænku niðri á Borgarfirði (minnir mig). Sú er Helgadóttir. En þær heita eftir sömu Siggunni. Helgadóttur verður sífellt tíðari gestur uppi á Héraði, enda endar með því að hún verður kona prestsonarins á Kirkjubæ. Þau flytja síðan til Reykjavíkur. Það gerir líka hann Nonni Geiri. Sigga og Sindri héldu samt alltaf góðu sambandi við afa og ömmu og voru tíðir gestir á Austurlandinu á sumrin.

Enn skulum við stökkva til í tíma.

Árið er 1984.
Þau Sigga, Sindri og Jón eru orðin hluti af stórum og fjölmennum kunningjahópi í Reykjavík. Hópur sá ákveður að stofna félag. Ingibjörgu Hjartar dettur í hug að gaman væri að hafa það leikfélag. Hugleikur er orðinn til og hann Nonni Geiri er í þeim kreðsum þekktur sem Jón Fö.

Svo, ef.
Hann Sveinn Guðmundsson hefði ekki náð í skottið á afa á Nesinu þarna um 1960 og afi og amma flutt suður, þá er eiginlega alveg víst að þau hefðu verið í þessum sama kunningjahópi. Eins þykir mér alveg eins líklegt að þau hefðu tekið þátt í leiklistarbröltinu með Hugleik á fyrstu árunum. Svo þannig munaði það bara Sveini Guðmundssyni að ég yrði innfæddur Hugleikari.

En samt ekki.

Ef afi og amma hefði flutt með hálfgjafvaxta kjördóttur sína til Reykjavíkur hún líklega bara alveg misst af því að rekast á föður minn sem flutti í Egilsstaði, beina leið vestan af fjörðum með smástoppi á Bifröst, nokkrum árum seinna.
Svo líklega hefði hann Hugleikur þá alveg misst af mér og ég af honum.

Það tók mig mörg ár að átta mig á þessum tengslum mínum við hugleikska fortíð. Ég var búin að vera mörg ár í félaginu þegar ég tengdi Siggu stofnfélaga Hugleiks við Siggu frænku ömmu minnar. Og ég vissi ekki að Jón fö væri að austan fyrr en að honum látnum þegar ég raxt á minningagrein um hann heima hjá ömmu. Í heimildavinnunni fyrir ritgerðina las ég síðan viðtal við þau þrjú, Siggu, Sindra og Jón, þar sem þau eru að segja frá leiksýningum á Kirkjubæ, þeim sömu og amma mín var áður oft búin að segja mér frá. Þá sá ég að við Hugleikur eigum að hluta, óbeint, sama leiklistaruppruna. Mér fannst það mjöööög kúl. Og varð þessvegna að skrifa um það langa sögu. Þessi hefði nú sómt sér vel á Einu sinni var... námskeiðinu hjá Benna og Charlotte, um árið. Í Hugleik.