5.11.08

Plebbar á Holtinu!

Nú hrynja vígin hvurt af öðru. Bankarnir dottnir í ríkið, ríkið dottið á hliðina. Og þjóðin með. Ja, ríkukallarnir virðast reyndar ennþá eiga péninga til að kaupa fjölmiðla og svona, en láta lítið fara fyrir sér.  Og í kvöld hrundi enn eitt vígi ríkukallanna. Það komu venjulegir alþýðuplebbar á Hótel Holt! Og það á miðvikudagskvöldi! Ef menn hlustuðu vel mátti heyra alla púka Mammons emja og væla yfir vanhelguninni.

Þetta gerðum við hjónin nú samt, af skömmum okkar. Reyndar var þetta ekki svona skyndihugdetta, eins og ríkukallarnir fá örugglega stundum þegar þeim dettur í hug, á miðvikudaxkvöldi, að skreppa og éta á Holtinu. Í júlí gerðist það nefnilega að bankinn minn... fyrrverandi... sem sagt... sjálfstæði ekki-ríkisbankinn sem hann er núna heldur auðsjúgandi svikamillan sem hann var, að leggja niður kreditkortið mitt. Nýju var troðið upp á mig ásamt allskonar dóti. Eitt af því var ávísun á fjórréttað á Holtinu fyrir tvo fyrir tíufúsundkall. Gilti til 1. des. Þegar var ákveðið að fara á 36 ára afmæli Rannsóknarskips sem er einmitt í dag. Pössun var naglfest í ágúst. Svo skemmtilega vill nefnilega til að foreldrar mínir eru í löngu skipulögðu stoppi á leið sinni til Víetnam og Kambódíu. Fjörutíu ára brúðkaupsafmælisferð.

Sem sagt, við fórum á Holtið í kvöld. Hvað sem tautaði og raulaði. Og hóstaði. Þar var nú aldeilis tómt. Þegar við komum voru tvær eldri og heldri dömur að borða. Hvort í sínu lagi. Okkur þóttu þær nú forvitnilegar. Ég ætla að skrifa tvö samhliða eintöl uppí þær. Svo fóru þær. Hvor í sínu lagi. Þegar við vorum að klára (annars frrrábæra máltíð með íkveiktri belju og allskyns) undu sér inn tveir jakkafatakallar. Ætluðu bara að droppa inn. Með níu manna hóp. Alveg örugglega glæpamenn og útrásarvíkingar með hlaðin gullkort af stolnum peningum og afskrifuðum lánum. (Eða löggiltir endurskoðendur. Mér skilst að þeir séu nýju ríkukallarnir og græða stórfé á að fela peningana sem gömlu ríkukallarnir náðu ekki að koma til útlanda.)

Við plebbar átum svo vel og rækilega að sennilega þurfum við ekki að næra okkur aftur fyrr en eftir kreppu. Og skömmuðumst okkar ekki baun við að vanhelga hin helgu vé Yfirstéttar með nærveru vorri, ódýrum fötum og miklu betri mannasiðum en ríkir plebbar sýna nokkurntíma. Svo fórum við í Skífuna og versluðum nokkra vel valda geisladiska á fúsundkall hvern. Ég verslaði sándtrakkið af Cabaret bara til að eiga lagið Money (makes the world go around.) Um daginn var ég nefnilega að labba kreppta Laugaveginn og þá komu í röð, Money með Pink Floyd og Money, Money, Money með Abba. Ég er að huxa um að búa til peningaplaylista í ípottinn minn. Í minningu Góðæris heitins.

4.11.08

Hor

Ojæja. Freigátan send heim af leikskólanum í dag, slöpp og með suð í lungunum.  Tími hefur verið pantaður hjá lækni síðdegis. Við Hraðbátur erum enn rotinpúruleg og hóstandi þó skárri en í gær held ég. Pantaði samt Rannsóknarskip heim úr vinnunni þegar litlu pestargemlingarnir voru orðnir tveir.

Verst að við ætluðum öll að fara og verða sjónvarpsstjörnur í dag, en veðrið er nú þannig að ekki er víst að viðrað hefði til kvikmyndatakna á róló hvort sem er.

En miðað við síðasta vetur er svo sem ágætt að sleppa fram í nóvember án þess að þurfa að fara með neinn til læknis. Þetta kvef verður vonandi bara vonn off.

3.11.08

Sótt

Ég og hinn níu-mánaða-í-dag Hraðbátur erum sloj.
Svo mjög að Rannsóknarskip er heima í dag til að sjá um okkur. Ég meika ekki einu sinni að setja mynd af honum í tilefni daxins.
Verðum vonandi nokkurn veginn fótafær á morgun. Sem er eins gott þar sem afinn og amman að eystan eru að koma í heimsókn á leið sinni til austurlanda fjær.

Sýningar gengu annars með eindæmum vel um helgina fyrir pakkfullu húsi og fengu fínar viðtökur. Held ég. Víðast hvar. Og nú er þeim lokið og verður aldregi endurtekið.

Hélt ég gæti verið á löppum en hef líklegast rangt fyrir mér. Ætla að slaga aftur í rúmið.

1.11.08

Pöllögg

Önnur sýning á einþáttungadaxkrá hugleix, Ó þessi tæri einfaldleiki, var í kvöld í Listasafni Reykjavíkur fyrir pakkfullu húsi. Verður í allra síðasta sinn annað kvöld.
Klukkan 20.00
1500 kall inn

Enginn hefur enn þorað að segja annað við mig en að þetta sé skemmtilegt. Fékk að gera hitchcockska innkomu í eigið stykki í kvöld og vera þýskur túristi um stund. Gaman að vera búin að því. Annars er ljómandi skemmtilegt að "koma fram" svona einu sinni. Gerður er góður rómur að þessu sem við erum að tónlista á milli hinna eiginlegu atriða.

En svo fer þetta nú bara að verða búið og menn fara aftur að kreppast heima hjá sér á kvöldin. Næsta mál á dagskrá er að reyna að ná síðasta horinu úr litlu ormunum svo hægt verði að halda áfram á sundnámskeiðinu í næstu viku. En þau eru búin að vera óttalega rotinpúruleg, Freigátan fór t.d. ekki nema hálfan dag á hinn langþráða leikskóla í síðustu viku. Sjálft Móðurskipið var meira að segja svo illa úldið í dag að ég lufsaðist varla á lappirnar fyrr en undir kvöld. Rannsóknarskip, sem þó fékk að fara í frumsýningarpartí í gærkvöldi, mátti gjöra svo vel að sjá nær alfarið um heimilið. En þetta er nú vonandi allt orðið skárra.

Og vonandi tekst mér að koma Glettingnum afganginn af leiðinni í prentun um helgina. Og þá fara bara að koma jól. Eða hvað?

30.10.08

Stubbar

Einu sinni var agnarsmá Ég. Ég átti tvo stóra bræður. Þeir hétu Ríkisstjórn og Útrásargaur.
Dag einn fóru stóru bræður mínir að skíta peningum. En þeir sögðu við Mig:
Þú mátt ekki skíta peningum af því það er ekkert kúl að skíta peningum ef allir eru aððí. Einhverjir verða að halda áfram að vera fátækir og Þú ert svo lítil.

Við þurftum allir að fara til útlanda. 
Ég spurði: Viljið þið vera samferða?
En þeir Ríkisstjórn og Útrásargaur svöruðu: Ne-hei! Þú mátt sko ekki koma með á einkaþotunni okkar því það er ekkert kúl að vera á einkaþotu nema einhverjir ferðist áfram á svona skíta-venjulega farrými. Og Þú ert svo lítil!

Á leiðinni út í heim hittum við Útlending. Ríkisstjórn og Útrásargaur tóku bara af honum peningana hans og sögðu svo: Farðu burt, heimski hundur!
Mér datt ekki í hug að vera vond við Útlending.

Ríkisstjórn og Útrásargaur fengu sér ný föt sem kostuðu eina og hálfa milljón. Varla þarf að taka fram að Ég fékk engin ný föt. Þið megið geta einu sinni af hverju.

En auðvitað er ekkert hollt að skíta peningum til lengdar. Núna eru Ríkisstjórn og Útrásargaur bara komnir með magapínu og harðlífi og allt er stopp hjá þeim. Þeir ná ekki meiri peningum úr rassgötunum á sér svo bráðum fæ Ég fínu fötin þeirra á nauðungaruppboði. Einkaþotan fer þangað líka en hana nenni ég nú ekki að kaupa af því að Ég er ekki fáviti, þó Ég sé lítil. Áður en síðasta flugfélag bræðra minna fer á hausinn ætla ég síðan bara að fara til Útlendings sem man alveg að Ég var ekkert vond við hann, þó hann sé vissulega ósáttur við bræður mína, og leyfir mér að vera þar til skítalyktin heima hjá mér verður horfin.

Þá sitja bræður mínir einir eftir hér með sína óleysanlegu garnaflækju.

Ég gæti svo sem reynt að bjarga þeim en Ég er of lítil.

Afmæli!

Annað kvöld er frumsýning á afmælis-einþáttungadagskrá Hugleiks í Listasafni Reykjavíkur. Nánari upplýsingar hér. Miðapantanir hér. Sýningar verða föstudag 31. okt., laugardag 1. nóv. og sunnudag 2. nóv. Miðaverð virðist vera leyndó, en ég myndi giska á verðbilið 1000 til 1500 verðlausar krónur.

Og þarna látum við hjónin nú aldeilis vaða á súðum. Ég skrifa tvö verk, Rannsóknarskip eitt, við leikstýrum einu hvort auk þess sem ég tek þátt í einhverjum tónlistargjörningum á milli þátta og inni í sumum. Og ég held þetta sé bara ekkert svo leiðinlegt.

En ég er nú samt að upplifa hroðalega erfið þrjú kvöld í röð núna. Það þarf víst að láta passa á meðan við erum á tveimur síðustu æfingunum og frumsýningu. Mér fannst það meira að segja agalegt áður en Hraðbáturinn öskraði í klukkutíma hjá Huggu móðu í gær. Í kvöld verða fleiri á vaktinni. Bjarkey mágkona ætlar að vera aðal(barna)pían Siffi bróðir verður með, ef hann verður ekki í vinnunni sökum góðæris, og Hugga móða kemur kannski á seinni vakt eftir námskeið hjá sér. Móðurskipið hefur áhyggjur af þessu og verður að segja það. Sem sagt, áhyggjur af geðheilsu og heyrn barnapíanna. Börnin eiga hreint ekki eftir að bíða neinn skaða af því að þjálfa lungun aðeins. En þau hafa hins vegar ágætisrödd...

Og Freigátan vaknaði með gráti og gnístran tanna um miðja nótt. Hana hafði dreymt að endur væru að lemja pabba og mömmu. Hún hefur kannski heyrt okkur tala um áhorfendur og misskilið eitthvað...

Til að reyna að redda einhverjum úrræðum fær Hraðbátur hraðkennslu á pela í dag... veit svosem ekki hverju það skilar svona á einum degi.

Ég held ég láti líða nokkur ár þangað til við Rannsóknarskip tökum aftur þátt í sama verkefni.
Framhaldinu verður svo bróðurlega skipt. Hann fær að fara í frumsýningarpartí, en ég fæ að sýna tvær sýningar í viðbót. Rómó.

28.10.08

Hverjir eru hryðjuverkamenn?

Samkvæmt þessum fáránlega lista tjallanna eru allir í Kongó, Íran, Írak og Sýrlandi hryðjuverkamenn. Þess vegna eru viðskiptabönn á þessum löndum og helst enginn í þeim má fá að éta. Allavega ekki í boði engilsaxa.
Í dag virðast margir innrásaherir sem ráðast inn í lönd án þess að lýsa yfir stríði ekki vera hryðjuverkamenn. Þeir sem þar eru fyrir og reyna að verja hendur sínar eru það, hins vegar.

Er maklegt og réttvíst að einhver þjóð sé á þessum lista? Eru ungabörn í Búrma sjálfkrafa hryðjuverkamenn? Við skulu athuga að þessi listi, og þessi fáránlegu og mannréttindaþverbrjótanadi lög meððí, er samsettur af ómarktækum taglhnýtingum forsetafávita í Bandaríkjunum sem sagan á eftir að skoða við hliðina á Gogga fjórða í bresku konungasögunni. Í rauninni verið að hengja heilu þjóðirnar fyrir stjórnir þeirra. Svolítið eins og þegar Íslenska þjóðin á núna næstu öldina eða svo að vera að borga skuldasúpuna fyrir sofandahátt síðustu ríkisstjórnar og nokkra ævintýramenn. 

Það hvarflar ekki að mér að skrifa undir varnarlistann sem segir að Bjólfarnir séu ekki hryðjuverkamenn. Mér sýnist líka vera algjörlega tilviljunum háð hverjir eru "hryðjuverkamenn" í dag. Svolítið eins og hverjir voru "kommúnistar" í Bandaríkjum kalda stríðsins.

Og jafnvel maklegra að Íslendingar teljist til hryðjuverkamanna en margir aðrir. Vorum við ekki á Lista Viljugra Fávita í stærsta hryðjuverkinu í þessu kjaftæði öllu saman? Það sér nú ekki enn fyrir endann á því þó svo að fréttir af því að það sé verið að plaffa niður slatta af báðum hliðum falli algjörlega í skuggann af Kreppunni sem engan hefur drepið enn.

Í boði Dabba hryðjuverkakóngs ættum við öll að vera á þessum lista. Tvisvar.