18.8.04

Hmmm...
Bankinn sem býr til greiðslumatið vill fá lánsloforð...
Viðskiptabankinn, sem er sá sem býr til lánsloforðin, vill fá greiðslumat til að geta gefið lánsloforð...

Búin að stofna mér eignamöppu á mbl.is sem í er kominn haugur af íbúðum sem ég nenni ekki einu sinni að skoða fyrr en ég veit hvort ég gæti haft efni á þeim.

Hvort kom eiginlega á undan hænan eða eggið? Eins og er vilja bæði bíða eftir hinu.

Snúið.

(Það fór þó aldrei svo að það kæmi ekki annað langtímaverkefni til að blogga um þegar MA ritgerð sleppti. Framhaldssaga næstu mánaða, jafnvel ára, verður um ævintýri í heimi fasteignaverslunar.)

Engin ummæli: