29.6.06

Nýjustu tölur

Freigátan fór í skoðun í gær. Er orðin 7,4 kg og 64 cm og komin í hattastærð 42 cm. Hún var líka sprautuð og lét sér ekki bregða frekar en síðast. Mikill ógurlegur harðjaxl sem stúlkan ætlar að verða.

Hér er annars sumar og sól og við ötlum út.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hún er alveg að ná mér í þyngd. Hún á að vísu 137 cm eftir á lengdina. (Hef svo ekki hugmynd um hattastærðina eftir að ég fór að ganga daglega með nærbuxur á hausnum).