1.7.06

Júlíííí!

Búin með fyrsta bindi af Tengdadótturinni og staðan er þannig að enginn er tengdadóttir neins... (Í bókinni, sko, ég er enn tengdadóttirin á þessu heimili. Og nýt mín!) Jú, nema reyndar ein sem ég held að sé alveg að fara að drepast. Ljómandi. Þetta meikar hreint engan sens. Freigátan sofnuð úti í vagni og ég að fara að þýða hryllingsmynd. Ætla að reyna að klára sem mest fyrir fótbolta. Hef ákveðið að halda bara með portúgölskumælandi þjóðum í dag.
Jeij!

3 ummæli:

Berglind Rós sagði...

Þetta er mjög spennandi! Ég byrjaði einhvern tímann á þessari bók, held ég hafi lesið svona 2-3 blaðsíður... fínt að fá þetta bara svona, úrdrátt jafnóðum bara :-)

Svandís sagði...

Vilt þú líka setja meiri myndir af Gyðu (sem mig dreymdi um daginn að héti Rebekka)

Nafnlaus sagði...

Maður horfir bara á sjónvarpið þar sem barnið syngur hástöfum.