8.11.08

Kúala Lúmpúr, aftur í tímann og kreppuspeki.

Nú eru gömlun mín í Kúala Lúmpúr í dag. Á morgun fljúga þau til Hanoi. Þau eru í ævintýraferð um Víetnam og Kambódíu í tilefni þess að hafa verið gift í 40 ár. Brúðkaupsafmælið þeirra verður einmitt daginn eftir að þau koma aftur til landsins en þá eru þau búin að panta ofurmatarboð með öllum barnaskaranum en sú norska verður einmitt á svæðinu þá líka. Þetta finnst okkur stórsniðugt. Þau eiga nú alveg inni hjá okkur að við gefum þeim að éta og við Hugga syss tökum þá kannski æfingaspinn á einhverjum eftirrétti fyrir aðfangadagskvöld.

Pabbi og mamma voru annars að rifja það upp áður en þau fóru að þegar þau voru ung unnu þau í banka. Með pabba og mömmu hennar Svandísar. Þá var sko ekki séns að fá víxil í bankanum sem maður vann í. Og þótti yfirhöfuð ekkert sniðugt að vera að lána fólki peninga. Þau bjuggu í bílskúrnum hjá afa og ömmu á meðan þau byggðu íbúðina sína. Neðri hæð í þríbýli þar sem þau búa ennþá. Einhver lán fengu þau nú að taka á meðan þau voru að byggja en það var fyrir verðtryggingu svo verðbólgan át lánin þeirra á nó tæm og þau stóðust alveg freistinguna að drífa í að taka meiri og hærri lán til að byggja stærra og flottara hús þegar sá fyrir endann á því. Eru því búin að eiga heimili sitt skuldlaust síðan um nítjánhundruðáttatíuogeitthvað og ferðast nú eins og landafjandar um allar trissur og hafa efni á því. 

Heppni? Snilld? Sitt lítið af hvurju, sennilegast.

Svo ólu þau börnin sín upp í aðhaldi og afturhaldssemi í fjármálum og vöruðu stranglega við óþarfalántökum. Þess vegna vorum við öll óttalegir nískuplebbar í góðærinu. Og verðum líklega ekkert mjög gjaldþrota í kreppunni. Heppni og tilviljun? Algjör. Annars á nú alveg eftir að koma í ljós hvar fasteignamarkaðurinn stendur og hvar lánin okkar enda í þessu vaxtabrjálæði. Kannski erum við þegar orðin gjaldþrota. En alveg er ég til í að leigja íbúðina mína af Íbúðalánasjóði eða Landsbankanum eða einhverjum. Verst að vera nýbúin að taka sameignina í gegn og láta mála að utan. Svo framarlega sem ég bý einhversstaðar þarf ég ekkert að eiga húsnæðið mitt. Leigumarkaðurinn á Íslandi hefur bara alltaf verið alveg á pari við, ef ekki dýrari, heldur en það er að borga af húsnæðislánum fyrir húsnæði af svipaðri stærð. Kannski breytist það núna þegar offramboð er orðið á húsnæði allsstaðar. Það væri nú mikið gott og vel.

Annars þurfti að gera hlé í þessari vangaveltu miðri. Hraðbátur er búinn að vera lasinn og hefur eitthvað verið að toga í eyrun á sér svo við ákváðum að skreppa með hann á læknavaktina, svona til öryggis. Og drengur greindist með bullandi eyrnabólgu í báðum eyrum og er kominn á pensillín. Freigáta er með astmakvef og er á pústi. Smábátur er með plástur á stórutánni. Gerði í síðustu viku heiðarlega tilraun til að feta í blóði drifin fótspor Rannsóknarskips frá sumrinu og rífa af sér tánögl í einhverjum íþróttum. Slapp þó með skrekkinn þar sem doktornum þótti ekki ástæða til að taka nöglina af.

Kreppa? Já, kannski. Við erum alveg örugglega að fara að eiga minni peninga. Og meiri skuldir. Og kannski ekki einu sinni íbúðina okkar. En mér finnst nú samt mikilvægara að krakkarnir séu nokkurn veginn í heilu lagi. Alin upp við heilbrigt gildismat. Og svoleiðis uppeldi verður alveg örugglega auðveldara í framkvæmd núna eftir hrun heldur en í góðærinu ógurlega þegar við vorum afturúrkreistingsplebbar. Núna erum við allt í einu þvílíkt Inni. Skemmtilegt.

Nú er Smábátur farinn í sumarbústað með afa sínum, ömmu og frænda. Rannsóknarskip er að horfa á fótbolta í annarri tölvu. Þau litlu eru komin í bókaormaleik frammi á gangi og eru búin að yfirgefa Brúðubílinn sem mallar í sjónvarpinu.
Og allt er í himnalagi.

Það er farið að dimma og ég er komin í jólaskap.

7 ummæli:

Hugrún sagði...

Já það er þetta með matinn fyrir pabba og mömmu þegar þau koma aftur. Spurning hvort ég sé með stærsta borðið. Já og desertinn. Annars datt mér nú bara í hug að bjóða upp á lambalæri og royalbúðing í eftirrétt. Við getum rifist um bragðtegundina eins og í gamla daga. En ef mig misminnir ekki þá borðaðir þú súkkulaðibúðing en ég allar tengundirnar nema hann.

Sigga Lára sagði...

Árni held ég sé búin að panta Brekkulæri. Annars var ég búin að bjóða Sigurvin og Bjarkey að fá borðstofuborðið sem er of stórt í geymslunni minni og þá verða þau væntanlega með stærsta borðið. Svo þið megið slást um hjá hvoru þetta yrði.

Eða sítrónufrómas? Eins og á jólunum? Annars er ég að spá í að kíkja í eitthvað af þessum milljón matreiðslubókum sem ég nota aldrei eftir eftirrétti. Uppá fönnið. Ég get þessvegna búið hann til fyrirfram heima hjá mér og komið bara með. Sjáum til. Nokkrar vikur til stefnu.

Nafnlaus sagði...

Æ þessi blessuðu börn. Maður getur endalaust hlegið og ornað sér við öll uppátækin, brosin og hláturinn!
Og áður en maður veit af eru þau orðin allt of stór og í huganum er maður svo þakklátur fyrir að allir eru í heilu lagi og tiltölulega hraustir á líkama og geði!

Hugrún sagði...

Já líst líka vel á að hafa þetta í Hvaleyrarholtinu.

Sigurvin sagði...

Það væri minnsta mál að halda hófið hjá okkur. Við ákváðum að fara varanlega leið á borðstofuborðsmálinu og fjárfestum í nýju borði úr IKEA og sex stólum, svona af því að við vissum að þeir væru að fara að hækka (hagsýnt ;). Þannig að aðstaðan er orðin ágæt hjá okkur og nóg pláss.

Svo er bara spurning hvernig við tæklum matseldina. Við gætum þurf á hjálp að halda þar.

Sigga Lára sagði...

Jájá, við Hugga verðum í því. Ég var meiraðsegja að hugsa um að marinera lærið bara heima hjá mér og koma svo með að í hófið og setja í ofninn þar.

Jájá, skipuleggjum þetta bara þegar nær dregur.

Bára sagði...

uuu, héddna, ég get sennilega lítið hjálpað til, en ég mæti allavega, kannski pínu seint þó.
En ég gæti nú kannske kippt með mér einni rauðvín í fríhöfninni.

Gæti líka þurft á smá skutli að halda föstudaginn á undan (28. nóv)ef einhver hefur tíma, en meira um það síðar.