6.4.09

Göngudeild geðsviðs

er svo kallað vegna þess að þangað skyldi ævinlega ganga. Detti manni í hug að ætla að leggja bíl þar fyrir utan er maður geðveikur og af því verður maður enn geðveikari.

En ef maður getur hringsólað með hinum geðsjúklingunum á bílastæðum Landspítalalóðarinnar í þennan hálftíma sem það tekur að ákveða að leggja kolólöglega við gulu línuna, með fullkomnu jafnaðargeði, að sex vikum liðnum, þá hefur maður líklega staðið sig reglulega vel á námskeiðinu í hugrænni atferlismeðferð.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Allt heilbrigðis- og tryggingakerfið er hluti að atferlisþjálfun. Frá greiningu til bílastæða. Ef maður lifir þetta allt af er augljóst að maður er ekki veikur ... á geði.