14.7.04

Loxins alminilega vöknuð eftir maraþonfund síðustu helgar, ekki seinna vænna. Höfundafundur hjá Hugleiki í kvöld, er ekki "með" neitt, en mikil lifandis skelfingar ósköp verður nú skemmtilegt að vita hvað hinir eru búnir að vera að bardúsa. Á von á að það reitist vel saman fyrir einþáttunga-eitthvað í haust.

Útvarpsþáttur að verða til. Petra að verða dramatúrguð. Fundargerð Aðalfundar skal á netið í dag, með góðu eða illu. Þó ég þurfi að vinna í ALLAN DAG!!! Vil geta farið heim í heiðardalinn á föstudag með einstaklega góðri samvisku.

Og svo held ég að það sé að koma sól.
Hurray for everything!

12.7.04

Og allir saman nú:

Hann á afmælídag... (o.s.fr.v., með hvaða lagi sem menn vilja, "Ég vil elska mitt land" eða upphitunarsöng Hugleix.)

Nú á ég 37 ára gamlan kall. Jahjarna hér. Nýtt máltæki; tímarnir eldast og mennirnir með... Annars er hann Dóri minn nú svo mikið spriklandi unglamb á alla kanta að lífaldur kemur ekkert að sök. (Skiljist eins og menn vilja.)

Þá er úthlutunarfundi aflokið (áréttist, ég er ekki búin að gá hvað nein leikfélög eru að fá í styrk, enda kemur það allt í ljós bráðum) og fer vonandi að verða kyrrt og hljótt í vinnunni til að fara að vinna úr "þaðsemþarfaðgera" haugnum sem hefur verið að hlaðast upp allt í kringum mig. Svo á að eyða næstu helgi í faðmi fjölskyldunnar fyrir austan og það verður nú aldeilis ljómandi.

Mikið er mar nú annars orðinn gamall, var eiginlega alveg snarónýt eftir maraþon stjórnarfund á föstudaxkvöld og laugardag og svaf mest á bæði mín grænu í gær. Hérna áður fyrr hefði maður nú tekið svonalagað í nefið, og helst djammað það sem eftir væri helgar.

Vaknaði nú samt aðeins í gær, og tók m.a. hið nýstofnaða lífríki kóngulóa á svölunum hjá Dóra til bæna. Rakst á ýmsar tegundir sem voru ekki einu sinni til í kóngulóabúskapnum á Laugarnesveginum um árið. Oj og bjakk. Vona að ég hafi svælt ófögnuðinn í burtu, með sápu og rúðupússi.


10.7.04

Staður: Vinnan
Staðartími: 09.32 á laugardagsmorgni.

Mikill dugnaður í gangi. Úthlutunarfundur hófst í gær, að honum loknum fóru stjórnarmenn (flestir) og vinguðust. Fundi skal fram haldið bráðum, er að bíða eftir þeim þar sem ég get ekki beðið eftir að sýna einhverjum morgunverk mitt, sem má ekki segja hér, vegna þess að það er leyndó gagnvart ákveðnu upprennandi ammælisbarni. Fór líka í mjög áhugaverða ferð í gær, en ekki hægt að skýra frá henni fyrr en síðar út af fyrrnefndu. Þetta er mjög erfitt líf. Ég þoli ekki að þurfa að halda mér saman.

Útvarpsþáttur er í smíðum, ekki skal ég þó alveg segja fyrirfram hvort hann verður jafn mikið "af viti" og faðir minn er búinn að panta. En það verður pólitík og mannfélagsádeila. Ójá. Verð samt annað slagið huxi. Hvað heldur maður sosum að mar sé, að þykjast geta endalaust verið að hnýta í hvernig fólk lifir... Það er bara svo margt sem þarf að segja, hálfgert skítverk en mér finnst einhver verða að gera það. Get ekki samþykkt að pólitískar þjóðfélagsádeilur séu, eða verði, "úreltar". Og hananú.

Og, ég ætla rétt að vona að ef alþingi ætlar að samþykkja aftur nánast sömu lögin, að herra forseti hafi þá bein í nefinu til að neita aftur að skrifa undir. Píhí. Það væri nú skemmtilegt. Allavega eitthvað í fréttunum á meðan. Þetta fer að verða eins og þegar Árni Jonsen bjargaði sumargúrkunni.

8.7.04

Í gær eldaði ég grjónagraut í fyrsta skipti á ævinni.
Í dag tók ég til á skjáborðinu mínu í fyrsta skipti í laaaangan tíma.
Á morgun er stjórnarfundur og það verður eitthvað lítið af helgi.

Og, mér sýnist stjórnarskráin vera úrelt. Það á greinilega að hafa af okkur réttinn til að kjósa um fjölmiðlafrumvarp með öllum tiltækum. Held ég fari að leggjast í að semja mína eigin. Kannski hef ég hana bara sem undirstöðu í útvarpsþáttinn minn! Spurning um hvort byltingarboðskapur má vera í ríkisútvarpinu, útvarpi allra landsmanna, í landinu þar sem er málfrelsi.

5.7.04

Strandir eru skemmtilegar. Þar er m.a. sundlaug með útsýni og ekkert símasamband. Og þegar ég kom heim aftur var heimurinn allur á hvolfi. Grikkir orðnir evrópumeistarar og hvur veit hvað.

Og forsætisráðherra vor fattaði loxins að hann var búinn að kúka á sig og hamast nú við að láta eins og lyktin sé af einhverjum öðrum.

Úr tónlistarheiminum: Upplifði ball með eðalgrúppunni Hraun. Er ennþá með stimpil á hendinni sem á stendur: Félagsheimili Trékyllisvíkur. Eignaðist líka bol með áletruninni "Ég er rebell, sjáðu mig dansa" fyrir vel unnin störf sem grúppía. Einnig hlýddi ég á tónlistarflutning í lýsistönskunum við gömlu verksmiðjuna í Djúpuvík. Það er með því flottara sem ég hef heyrt. Og Dóri minn að fara að leika karlrembusvín í tónlistarmyndbandi.

Og ég hef ekki ennþá hugmynd um hvað ég ætla að segja eða spila í útvarpsþættinum mínum eftir 3 vikur.
Fussumsvei og kæruleysi.

2.7.04

Trékyllisvík
lalalalalala

(við lagið Mull of Kintyre)

Búið að festa þetta lag við þennan stað, sem ég hef ekki komið á, svo rækilega að mig dreymdi í nótt að ég væri með Nönnu, Ástu og hraunurum í Mull of Kintyre. Það var mjög skemmtilegt. Kannski maður skreppi einhverntíma aftur til Skotlands, þá í góðum félagsskap. Allavega, nú erum við að fara Westur. Er að reyna að rífa upp góða skapið í mér, sem er búið að vera í einhverri fýlu undanfarið.

Engin afsökun fyrir því, samt. Er að fara í ferðalag með öllu skemmtilega fólkinu mínu, á meðan unnustinn situr hinn þolinmóðasti heima í festum og Hugleikur tekur til í geymslunni sinni. Var að komast að því að ég á 180.000 kall í ráðstöfunarfé, guðmávita hvernig, og endalaust af skemmtilegum verkefnum á prjónunum.
Er eitthvað hægt að hafa það betra? Held ekki.

Reyndar búið að vera mjög gaman, yfirhöfuð, mjög lengi. Sennilega bara komin einhver þreyta í skemmtilegurnar og þarf að smyrja. Það skal gert með bjórkippu og kassa af rauðvíni við hljóðfæraslátt og söng á Vestfjörðum um helgina.

Trékyllisvík
lalalalalala

1.7.04

Lesendabréf frá samviskunni.

Sigríður. Þú ert nú eitthvað vangefin!
Ertu virkilega ekki enn búin að læra það að að það er ALDREI góð hugmynd að vera full til hálffjögur í miðri viku!?! Ég veit að þig langar í meðferð, en er þetta nú ekki full mikið á sig lagt.

Sérstaklega þegar þú VEIST að þú ert ein í vinnunni, og Hörður er búinn að koma og setja eldref í tölvuna sem þú kannt ekkert á og þú átt að vera að gera fullt af hlutum sem hreinlega krefjast þess að þú sért ÓDRUKKIN Í VINNUNNI!

Svo máttirðu náttúrulega alveg búast við því að alheimurinn refsaði þér fyrir kæruleysið. Notaði til þess beintengingu sína við skrifstofuna, vítisvélina, og segði henni að éta í tætlur blaðsíðu 24 í Kabarett. Vertu bara fegin að þetta var ekki eina eintakið Í HEIMINUM! Og svo hefðiru náttúrulega getað sagt þér sjálf að þú hefðir ekki vitsmunalega orku í að laga flækjuna án þess að skemma svo rækilega mikið að það þurfti að kalla á viðgerðarmann, akkúrat þegar þú varst að þynnast upp og gast helst ekki átt samskipti við ókunnugt fólk.

Og svo áttu líka eftir að pakka niður fyrir helgina, fara í RÍKIÐ, og fleira og fleira sem þú átt örugglega eftir að gleyma öllu saman svo ekki sé minnst á að vera þunn og geðveik í Trékyllisvík.

Þú ert nú meiri bjálfinn!

S(amviskan)