27.10.06

Ókei...

Þetta fer nú að verða svolítið ruglandi.

Bankinn er búinn að hringja. Hann vill ekki lána okkur pening nema hann fái að lána okkur meira en við báðum um. Það er alveg sjálfsagt af okkar hálfu. Bankinn segist vera byrjaður að "undirbúa lánið" en að það verði ekki "samþykkt formlega" fyrr en á mánudag.

Hvað þýðir það?

Fáum við lán eða ekki?

Ég er ekkert miklu nær... þori allavega ekkert að fara að fagna strax.

En nú er allavega staðar nem í þessu öllu fram á mánudag. Pfff.

1 ummæli:

fangor sagði...

þetta bjargast allt. á mánudag færðu semsagt pappír upp á lánið, það virðist taka 3 daga að græja svoleiðis í dag. eða 10, eins og hjá okkur