9.2.09

Hið sjúka geð

Snillingar eru þunglyndir og geðveikir.
Margir mestu snillinganna eru meiraðsegja ekkert ógjarnan alveg kolsnar.

Svo hljóðar málsvörn mín sem ég stefni á heilbrigðiskerfið, enn einn ganginn í slagsmálum við svartan hund með kvíðaröskun.

Nú skal endurheimtur hæfileikinn til að taka smávægilegum hnökrum á daglegum rextri með því að yppa öxlum og segja "fooookkitt!" í stað þess að fara að grenja.

Hvað segja menn annars?
Allir hressir?
Davíð?
Dorritt?
Hvalveiðar?

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Baráttukveðjur í slaginn.

Nafnlaus sagði...

Þú fer rangt með nafnið á kórnum. Hann heitir Sálsýkiskórinn.

Með bestu kveðju frá tónlistardeild Rásar 1.