Jólasveinarnir 13  
1.
Glitnisgaur kom fyrstur,
gráðugur í öll bréf. 
Hann laumaðist í vasana
og lék með fólksins fé.
Hann vildi sjúga  þjóðina,
þá varð henni ekki um sel,
því greyið var sko afæta,
það  gekk nú ekki vel.
2.
Björgúlfsaur var annar,
með gráa hausinn  sinn.
Hann skreið úr skipi hafsins
og skaust í bankann inn.
Hann  faldi sig í Rússlandi
og froðunni stal,
meðan bjórmeistarinn átti 
við Yeltsín gamla tal.
3.
Bjármann hét sá þriðji,
böðullinn  sá.
Hann krækti sér í milljarða
þegar kostur var á.
Hann hljóp  með þá til Noregs
en hirti ekki um sjóðina,
sem féllu hver af öðrum 
við sjáum núna slóðina.
4.
Sá fjórði, Bændasleikir,
var  fjarskalega sljór.
Og ósköp varð hann leiður,
þegar bankadruslan fór. 
Þá þaut hann eins og Welding
og þotuna greip,
og flaug með henni  í London
því krónan var svo sleip.
5.
Sá fimmti Smárasnefill, 
var skrítið fjármagnsstrá.
Þegar hinir fengu í nefið
hann barði  dyrnar á.
Þeir ruku'upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð. 
Þá flýtti' ann sér að pokanum
og fékk sér góðan verð.
6.
Sá  sjötti Sigjónárna,
var alveg dæmalaus.-
Hann framundan rústunum
rak  sinn ljóta haus.
Þegar fólkið vildi skýringar
á auralausum  reikningum,
hann slunginn var að afsaka
og skyldi ei neitt í hlutunum. 
7.
Sjöundi var Heiðarmár,
sá var sjaldan sýndur,
ef fólkið  vildi tal af 'onum
hann var alltaf týndur.
Hann var ekki sérlega 
hnugginn yfir því,
þó þjóðarskútan maraði
þá hálfu kafi í. 
8.
Baugabur, sá áttundi,
var skelfilega þver.
Hann hluta  keypt'af bönkunum
með hluta úr sjálfum sér.
Svo lánaði hann sér  milljarða
og yfir öðrum gein,
uns hann stóð á blístri
og stundi og  hrein.
9.
Níundi var Nógafaur,
næmur á fé og snar.
Hann  hentist út um heim inn
og hluti keypti þar.
Á enskum bita sat hann 
í símaleik
og át þar hluti drjúga,
enga Breta sveik.
10. 
Tíundi var Skallakjaftur,
tungulipur mann,
sem hamaðist á landslýð 
og æsti upp hann.
Ef vammlegt var hvergi
né ósiðlegt að sjá, 
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.
11.
Ellefti var  Stjórnaskelfir
aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hláleg
og  heljarstór eyru og nef.
Ef fnyk af féhyggju
ekki hann fann,
þá  léttur, eins og reykur,
lyktina upp spann.
12.
Sólráður, sá  tólfti,
kunni að spinna vef.-
Hann þingmannasveitina
sveigði í  kosningaþref.
Hann krækti sér í fylgi,
þegar kostur var á.
En  stundum reyndist enginn
akkurinn hans þá.
13.
Þrettándi var  Kreppugeir,
þá var komið kvöld,
alltaf kom hann síðastur
á  bankahrunsöld.
Hann blekkti litlu börnin sín,
sem mótmæltu prúð og  fín,
og trítluðu um bæinn
með spónaspjöldin sín.
(Höfundur  óþekktur)
4.12.09
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli