24.5.03

Jæja börnin góð.
Þá er ég komin úr þessari gífurlega upplýsandi og fræðandi rannsóknaferð á höfuðstaðinn. Sjúkrahús eru alltaf jafn spennandi að innan. Þaraðauki fór ég að á höfundafund hjá Hugleik, þar eru menn ennþá að springa úr hugmyndaríki og mér heyrist ekkert lát ætla að vera á framleiðslu leikverka í öllum formum næstu árin. Þar var líka lesið verlaunastykkið "Lífið í lit" eftir Hrefnu Friðriksdóttur en það vann einþáttungasamkeppni á leiklist.is. Það var ljómandi fyndið og gerði grín að ákveðinni tegund veruleikasjónvarps. Gargandi snilld.
Svo hitti ég fullt af fólki, hékk heima hjá Ástu og fleira skemmtilegt auk þess sem við Svandís könnuðum til hlítar hvítvínsbirgðir á þeim ágæta stað Cafe Romence sem kunningi minn Jói Píanó var að kaupa. (Hvítvínið hjá honum er baneitrað og maður verður fullur ef maður drekkur nógu mikið af því!)
Næsta mál á dagskrá er síðan útskriftar/júróvisíon eitthvað hjá Siggudís uppi í sumarbústað á eftir... jæks... eftir tvo tíma! Ég óska annars öllum vinum og ættingjum til sjávar og sveita, í Frakklandi og Þýskalandi, til hamingju með júróvísíondaginn, og minni þá sem eru staddir erlendis og komast í síma að KJÓSA! Í sextánda sætið stefnum við...!
Ég er semsagt farin að mála á mig andlit.
Skýrsla síðar ef eitthvað sögulegt fer fram hérna megin.

13.5.03

Mér leiðist.
Þess vegna hef ég huxað mér að svara nokkrum spurningum sem hafa legið eins og mara á þjóðinni í umþaðbil tíu ár.

Af hverju get ég ekki lifað eðlilegu lífi?
Svarið á eftir að koma mörgum á óvart. Eðlilegt líf er nefnilega ekki til! Það er ekkert eðlilegt við lífið. Vona að menn fari ekki á taugum við þessar upplýsingar.

Af hverju get ég ekki lifað bisnesslífi og keypt mér hús, bíl (húsbíl?) og íbúð?
Bissnesslíf? Er það ekki eitthvað svona í jakkafötum og drögtum? Ja, ég veit af hverju ég get það ekki, væri trúlega dauð úr leiðindum á fyrstu viku, sama hvað í boði væri.
Mér finnst vera lykilatriði hvort er verið að tala um hús og bíl, eða húsbíl. Mig langar nefnilega persónulega hvorki í hús eða bíl, en væri hins vegar alveg til í að eiga húsbíl og íbúð. Vöntun á þessum tilteknu lífsgæðum eru hins vegar tilkomin vegna fjarveru fjármuna sem aftur er tilkomin sökum áhugaleysis á téðu bissnesslífi. Alltsaman endalaus keðja orsakar og afleiðinga.

Af hverju get ég ekki gengið menntaveginn þangað til að ég æli?
Vegna þess að menntavegurinn er langur og grýttur forarslóði sem liggur ekkert nema til ómennsku og glötunar.

Af hverju get ég ekki gert neitt af viti?
Það er nú einhvern vegin þannig að það sem er "af viti" hljómar ekki skemmtilega nema einu sinni á umþaðbil þúsund ára fresti og alltaf hægt að gera eitthvað skemmtilegra við líf sitt.

Af hverju fæddist ég lúser?
Trúlega genin. Það er ekki enn búið að einangra lúsersgenið.

Af hverju er lífið svona ömurlegt?
Þeir hanna það þannig til að bögga mann. Því ræður skepnuskapur almættis og örlaga.

Ætli það sé skárra í Zimbabwe?
Nei.

Af hverju var ég fullur á virkum degi?
Það virtist bara vera góð hugmynd á þeim tíma...

Af hverju mætti ég ekki í tíma?
Af því að "ég" var fullur.

Af hverju get ég ekki byrjað í íþróttum og hlaupið um eins og asni?
Af því að íþróttir eru fyrir plebba og heilalaus útlits- og samkeppnisdýrkandi viðrini.

Af hverju get ég ekki verið jafn hamingjusamur og Sigga og Grétar í Stjórninni?
Vegna þess að til þess þarf maður að vera glaður aumingi. "Ignorance is Bliss".

Ef einhverjir fleiri (þ.e.a.s. fleiri en Jónas og Unnsteinn) hafa áhuga á að spyrja heimskulegra spurninga þá er ég hafsjór af jafnheimskulegum svörum.

9.5.03

Já, þetta er að verða frekar letilegt blogg, ég kenni alfarið um reykleysi í tölvuaðstöðunni í foreldrahúsum. Bloggleðin ágerist vonandi þegar ég verð komin með:
a) Almennilega tengingu (ekki 56k)
b) Tölvuaðstöðu sem er reykinga- og þar með kaffidrykkjuvæn, og ekki einhversstaðar niðri í kjallara þar sem maður nennir aldrei að fara og þaðan af síður að vera.
Var annars að bæta við í linkana einu snilldarbloggi, vona að það afi virkað, það er sumsé hann Toggi sem bloggar undir nafninu Varrius, en þetta er brilljant blogg fyrir áhugamenn um leiklist og aðra menningarstarfsemi, fullt af allskonar linkum og tilkynningum um allt mögulegt sem um er að vera auk skoðana bloggara á öllum fjandanum, en þær hefur téður margar.
Er í vinnunni. Lítið um að vera hér í dag af ýmsum ástæðum. Ætla að heimsækja Mæju í heimleiðinni og drekka besta kaffi í heimi við besta eldhúsborð í heimi. Verð ein heima um helgina þar sem foreldrarnir eru fyrir Westan í jarðarför. Held sumsé ekki kosningapartý, né heldur fer í slíkt þar sem stór skörð eru fyrir skjöldum víða og ýmsir eru ýmist nýjarðaðir eða bíða slíkrar þjónustu. Verð samt heima á kosningadag/kvöld/nótt og hef huxað mér að reyna að vaka eins lengi og ég get eftir úrslitum með aðstoð kaffis, ef einhverjir verða á svæðinu og hafa áhuga á slíku samsæti.

2.5.03

Þá er ég á góðri leið með að verða letibloggari, best að reyna að afstýra því hið snarasta. Er þessa dagana að passa hús og hund fyrir Mæju og Sigga, hangi þar löngum stundum í góðu yfirlæti, prjóna og les, nú síðast "Ævi og ástir kvendjöfuls" sem er ágætis snilld. Svo fer ég út með hundinn, hleyp í slómó út um allan skóg og þykist vera í sjampó/dömubinda auglýsingu. (Verst að ef eitthvað af eigulegum karlpening á svæðinu er eitthvað að gefa því auga þá sé ég það ekki, sjampó/dömubinda konan fer ekki út með gleraugu.)
Svo er kominn snjór núna, þannig að auglýsingin er orðin "jóla".
Er á leiðinni í bæinn ca. 16.-21. maí og hef huxað mér að gera á þeim tíma hérumbil allt og hitta alla í heiminum, þarsem guðmávita hvenær ég lendi í bæinn næst. Skipulagning stendur yfir. Svo var mér að berast njósn af því að litlu hjónaleysin ætli eftilvill að bregggða undir sig betri fætinum og skreppa á Austurlandið um helgina, og mikið verður gaman sé svo.
Ogþaðvarnúþað.

22.4.03

Jæja.
Þá eru þessir gífurlega letjandi og fitandi páskar búnir. Við Bára eyddum þeim reyndar á venju fremur skynsamlegan hátt, prjónuðum töskur og lögðum drög að tónverkum. Annars vegar tal- og tónverkinu "Pjetur og úlfurinn" og hins vegar "Hver tók ostinn minn?" sem er (eða verður) sinfónía fyrir blásarasveit. Þar með er búið að skipuleggja verkefni fyrir sumarið.
Ég fór annars á eitt ball með einhverri pjakkahljómsveit, hverrar nafn ég man nú ekki í svipinn, en ku vera einhver vinsæl... Þar var hávaði og margt, margt, margt fólk sem ég habbði ekki séð lengi, lengi, lengi. Gaman, gaman, gaman, fyrir utan hvað allir voru orðnir gamlir, sérstaklega ég sem var í þrjá daga að jafna mig.
Svo er ég búin að vera að lesa ýmislegt skemmtilegt, m.a. bækur úr bókaflokki sem heitir í íslenskri þýðingu "Úr bálki hrakfalla". Hryllilega fyndið og ég mæli hiklaust og eindregið með þessum niðurdrepandi lestri, sérstaklega fyrir Togga og annað kaldhæðið fólk sem finnst gaman þegar slæmir hlutir koma fyrir lítil börn.
Svo er ég að velta fyrir mér að fara að spá í að gera eitthvað í mastersritgerðinni minni... svona einhverntíma. Fyrst þarf ég samt að fara í vinnuna, og örugglega gera svona fimmtánhundruðþúsund merkilegri hluti.

17.4.03

Hey, kúl...

Warrioress
You are the Figher Femme


Which Ultimate Beautiful Woman are You?
brought to you by Quizilla

16.4.03

Góðir Íslendingar.
Það er helst frétta úr héraði að nú hef ég heimt hana litlu systur mína heim í páskafrí, og smitað hana af prjónadellu. Nú fyrir stundu sátum við einmitt tilfætis í baðstofu foreldra vorra þegar allt í einu glumdu heldur en ekki kunnuglegar raddir úr viðtækinu, þar voru komnir þeir Svavar og Snorri að tala um eitís hljómsveitina sína, Múnbúts. Mikið langaði okkur nú að geta brugðið undir okkur betri fætinum og fara og sjá þá snilldarmenn á Astró um páskahelgina, en það verður víst ekki á allt kosið í þessu lífi.
Einnig fann ég til þess að hann Snorra minn hef ég nú bara ekki séð svo árum skiptir, enda ekki heyrt margt fyndið eða spaklegt í mörg ár. Úr þessu þarf endilega að bæta næst þegar ég á leið í bæinn.
Annars, ennþá jafn gaman í vinnunni. Ferðast aftur í tímann á hverjum degi og er það vel. Nútíminn er hvort eð er kjánalegur og mest fyrir plebba. Um páskana er fátt fyrirhugað, nema hvað við systurnar höfum huxað okkur að ræna bifreið föður okkar, (sem inniheldur þessa dagana nýmóðins hljómflutningstæki með geislaspilara og allt!) og bregða okkur á Stöðvarfjörð, en það fullyrðir systir mín að sé afbragð allra staða hvað mannlíf og menningu snertir.
Þetta er sumsé alltsaman gífurlega spennandi.