19.2.06

Mont

Var búin að gleyma að það er konudagur. Í tilefni daxins þreif Rannsóknarskip allt húsið og fór með mig í gönguferð og keypti handa mér tertu. (Ætli honum finnist megrunin mín ganga fullhratt fyrir sig?) Í tilefni þess að ég á svo góðan mann, eins og segir í laginu, ætla ég að setja inn pabbalegar myndir:


Feðginin í Hreiðrinu, morguninn eftir fæðingu.


Sætir feðgar á aðventunni.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Dísus, maðurinn minn óskaði mér nú ekki einusinni til HAMINGJU!! Hvað þá meira. Hann hlýtur að þjást af psyhyg eða einhverju...

Siggadis sagði...

Æji, hvað hann Árni er alltaf jafn sætur :-) ... rosalega krúttarlegur og góður pabbi þarna á ferð alveg greinilega... og ekki skemmir fyrir að hann mundi eftir deginum í gær!