21.1.09

Hneisa

Ömmubarn framtíðar*: Amma? Hvað settuð þið afi á byltingarbálin í Janúarbyltingunni 2009?
Sigga amma: Ekkert, elskan. Við Árni afi vorum með flensu.

Helvítis fokking fokk.

*Ömmubarn framtíðarinnar hefur sjúklegan áhuga á Íslandssögu. Á enda ekki önnur leikföng en nokkra leggi og eina skel og eitthvað hálfónýtt drasl sem lifði af illa meðferð foreldranna og hefur verið að lesa nokkur blöð af bloggi sem voru prentuð út áður en Íslendingar hættu að hafa efni á að framleiða rafmagn og fóru alfarið að reiða sig á elda mótmælanna um ljósmeti.

1 ummæli:

Magnús sagði...

Frábær færsla.