Komin heim með fullan haus af hori og skít. Nenni ekki að rifja upp hvað gerðist á því síðasta. Jú, við fermdum eitt barn. Hin stækkuðu. Í nóvember fékk ég hor í hausinn. Ðetts itt.
Árið hef ég semsagt á neikvæðni, fýlu og hori. En það getur þá væntanlega ekki annað en skánað. Komum frá Akureyrinni í gær. Allir hamingjusamir að komast aftur í einhverja æðislega rútínu. (Allavega ég.)
En þá er komin í gang keppnin ógurlega hjá okkur Rannsóknarskipi! Formleg vigtun hefur reyndar ekki enn farið fram. (Tími vannst ekki til í morgun þar sem við þurftum svo mikið að vekja okkur og öll börnin.) En ég er í huganum byrjuð í ógurlegri megrun samhliða gríðarlegu vítamínáti til heilsubótar og kvefniðurskurðar. Þetta bara gengur ekki svona lengur. Nú verður vítamínskápurinn étinn í heilu lagi auk þess sem fjárfest verður í heilmiklu í viðbót og kál étið í þvílíku akkorði að aðrar eins aðfarir hafa aldregi viðhafðar verið.
Þessi kvefhundur er orðinn svo langur að áramótageðvonskan er óvenjusvæsin og löng í annan endann. Ekki gott.
Annars er gott að við skulum hafa fattað uppá þessu, að láta nýtt ár byrja akkúrat þarna. Ef ekki væri þessi tilfinning fyrir einhverskonar tímamótum og nýju upphafi akkúrat núna væri veturinn nú illa leiðinlegur. En í staðinn getur maður til dæmis stefnt á að verða hoj og slank, aukinheldur glansandi af hreysti og heilbrigði þegar líður að vori!
Ætla að hitta lækni á fimmtudaginn. Og láta athuga á mér bakið. Og geðið. Og kvefið.
(Hefði kannski þurft þrjá samliggjandi tíma?)
27.12.10
Millijól
Kona ku ekki eiga að segja frá því en við erum farin í árlegu jólaferðina norður í land. (Ekki segja innbrotsþjófunum sem þið þekkið, og þið innbrotsþjófar, það er haugur af fólki heima um allt hús með börn, hunda og fílelfda karlmenn auk þess sem báðar tölvurnar fóru með okkur. So, there.)Erum lent í Brekkunni hvar Hraðbátur heldur áfram jóla-hungurverkfallinu og nærist eingöngu á vatni, laufabrauði og stöku kartöflu. Greinilega meðvitaður um kreppuna og reynir að vera ódýr á fóðrum. Freigátan náði að sjá einn kött undir hægindastól og síðan heilan haug í sjónvarpinu og er afar glöð eftir. Þau eru nú sofnuð. Smábátur fór til föðurhúsanna í gær með eftir-storms-flugi og Rannsóknarskip er farið út í sveit að spila póker. Við tengdó erum að láta Skjá Einn skemmta okkur.
Svo eru að koma áramót. Þegar að þeim kemur verðum við flutt í orlofsíbúð á Akureyrinni hvar við ætlum að hafa slatta af tengdafjölskyldunni á Gamlárskvöld eftir ógurlegt útsölukrús. Einhverra hluta vegna gengur mér alltaf betur að versla á Akureyri heldur en í Reykjavík (og best á Egilsstöðum.) Meira úrval finnst mér EKKI betra. Mig vantar aldrei neitt margt. Og er alin upp við að ef það fæst ekki í kuffilaginu þá þarf maður ekki að nota það. Ellllska forræðishyggju.
Verst að ég verð líklega utan netsambands á nýjársmorgun. En þá hefði mig langað afar mikið til að pósta nýju uppáhalds nýjársmorgunssetningunni minni sem er úr besta nýjárslagi allra tíma, Nýjársmorgunn, með Sigurði og Memfismafíunni. (Eftir Braga Baggalút, off kors):Nýjársmorgunn og örlög sín enginn veit!
En það tjóar ekki að lifa í eftirsjárflóði óskrifaðra Fésbókarstatusa. (Frekar en að sitja og grufla, gæskan.) Sérstaklega ekki fyrirfram.
Við hlustuðum annars mest á ýmislegt eftir áðurnefndan Braga á norðurleiðinni. Fyrst Sigurð og Memfismafíuna, Nú stendur mikið til, þá nýrri jóladisk Baggalúts og svo líka Gilligill. Aukinheldur var bragðað rækilega á Jónasi Sigurðssyni og Ritvélum framtíðarinnar. Alveg svakalega snilld þar á ferð.
Þá lýkur tónlistarumfjöllun. Er annars að lesa Takk útrásarvíkingar, hlæjandi eins og hross. Á næstu dögum ætla ég að fara með Nesböinn sem ég fékk í jólagjöf (af því að ég átti hann) og skipta honum út fyrir einhvern annan (þar sem ég á engan annan) og verð þar með horfin til reifaralands.
25.12.10
Jólakort!
Aldrei slíku vant voru send jólakort í ár. Þess vegna var ekki birt jólakveðja hér á aðfangadagskvöld. Líka vegna þess að þetta er lélegasta bloggár sögunnar. Bót og betrun á næsta ári. En hér ætla ég nú samt að birta sýnishorn.
Þetta jólakort var ekki sent:

Þetta var eina myndin sem náðist af Hraðbátnum í myndatökunni. Hann vildi bara alls ekki taka þátt í henni.
Þetta var hins vegar sent!

Gleðileg jól!
Þetta jólakort var ekki sent:

Þetta var eina myndin sem náðist af Hraðbátnum í myndatökunni. Hann vildi bara alls ekki taka þátt í henni.
Þetta var hins vegar sent!

Gleðileg jól!
21.12.10
Síðasti vinnudagur fyrir jól!
Eða, vinnumorgun. Ætla að láta mig hverfa um hádegi.
Og mikið hroðalega ætti maður nú að vera að taka til á skrifborðinu sínu...
En, neinei. Best að hanga bara á internetinu og gá hvort þetta reddist ekki.
It's the Icelandic way!
Og mikið hroðalega ætti maður nú að vera að taka til á skrifborðinu sínu...
En, neinei. Best að hanga bara á internetinu og gá hvort þetta reddist ekki.
It's the Icelandic way!
18.12.10
Gott. Gottgott.
Eftir að hafa garfað í gegnum ónýtu bloggfærslurnar frá 2007-08 fatta ég mögulegan hluta ástæðunnar fyrir því að allt er betra í kreppunni. Síðasti vetur gróðærisins virðist hafa verið mesta gróðrarstía einhverra endalausra ógeðsbaktería hér á heimilinu. Við vorum veik ALLAN veturinn. Í febrúar fæddist síðan Hraðbátur og fékk sitt fyrsta kvef þriggja vikna.
Þetta var fyrsti vetur Rannsóknarskips í kennslu og fyrsti vetur Freigátunnar á leikskóla. Ég var að byrja í ritstjórnarnáminu átti að vera í tímum einn dag í viku fyrri hluta vetrar og komst ekki nærri alltaf. Því síður í bumbusund og -jóga. Upprifjun á þessum hryllingsvetri draga fram minningar um ÓTAL daga í horkenndu stofufangelsi með geðvondri Freigátu. Um vorið voru síðan kirtlar rifnir úr hálfri fjölskyldunni og allt hefur verið fáránlega mikið auðveldara síðan.
Svo mjög að hrun og samdráttur í peningamálum hefur ekki haft teljandi áhrif á geðfegurð fjölskyldunnar. Enn sem komið er.
Ferlega hefur maður það nú gott. Þrátt fyrir alltsaman.

17.12.10
Bévuð 2007 vandamál.
Þau eru ekki einhöm, ruglin frá 2007. Til dæmis er það nú svo, í arkævinu á þessari ágætu vefdagbók, að frá og með 28. janúar 2007 og til mánaðamóta júní/júlí 2008 eru allar myndskreyttar færslur með spurningamerkjum í stað íslenskra stafa. Og ekkert mismunandi, neitt. Allir íslenskir stafir rípleisuðust með EINS spurningamerkjum. Ekkert sem hægt er að gera til að stytta sér leið í lagfæringum á þessu. Og þær þarf að gera.
Þetta tímabil nær frá eins árs afmæli Freigátunnar, fram yfir fæðingu Hraðbáts og þar til hann er um 5 mánaða. Eins og gefur að skilja er þarna varðveitt, einum staða, ógnarmikið af myndskreyttum skýrslum sem ég vil síst brjóta eður týna. (Og allt plöggið fyrir hið stórgóða stykki Epli og eikur, sem ég var að berjast við að lagfæra áðan, mér til upphitunar.)
Ég hef vitað af þessu næstum allan tímann. Fattaði eitthvað stillingarfokköpp og lagaði þarna 2008. En skaðinn var alveg ferlega skeður. Enda fór ég í fýlu í alveg ár og nennti ekki að gá hvað þetta næði langt aftur. Var eiginlega bara að því núna. Svo er ég búin að vera að laga eina og eina færslu, í gegnum árin... en hroðalega skrifar maður mikið af íslenskum stöfum alltaf, eitthvað.
Svo er fárviðri um allt land. Ógeðslega kalt úti. Og ég vildi að ég væri ennþá undir sæng.
Brrrrrr.

16.12.10
Framvinda með ágætum og jólum
Sveimér ef pensillínkúr 3 er ekki bara að virka. Þrátt fyrir skítakulda og allskonar geðbólgur. Ljómandi gott. Langaði ekkert að láta bora gat á hausinn á mér fyrir jólin.
Á síðustu dögum hverrar annar geri ég framvinduskýrslu. Þá skýrsla ég um framvinduna. Það er alltaf mjög upplífgandi. Allskonar verkefni sem tók kannski ekki nema dagstund að framkvæma verða að „lið“ með fylgiskjali og allir dagarni sem manni finnst hafa farið í hang og vitleysu verða að óskaplegum dugnaði. Þetta heitir að endurskrifa söguna. Ég er komin uppí fylgiskjal 2e og er ekki einu sinni byrjuð að tíunda sjálfa rannsóknarvinnuna. Þaraðauki búin að búta hana talsvert niður þannig að þar undir verða ótal lítil skjöl. Sem virkar alltaf flottara en eitt stórt.
Samt alltaf pínu próblematískt að halda sig að verki og svona. Jólaskapið hleypur með mann í allskonar gönur.
Mikið ógurlega er diskurinn með Sigurði og Memfismafíunni að spila sig vel inn. (Hann er í bílnum, sko.) Bara virkilega falleg lög og dásamlegir textar. Líklega mesta jólasnilld í íslenskri jólaplötuútgáfu síðan Þrjú á palli gáfu út Hátíð fer að höndum ein.
Ég hef einmitt verið að pæla í skorti á íslenskum jólalögum sem eru ekki:
a) sálmar
b) ömurlegar poppfroður
c) ömurlegar poppfroðujólaþýðingar á lögum sem gjarnan eru ekki einu sinni jólalög.
Baggalútarnir hafa reyndar staðið sig einstaklega vel á vettvangnum að jóla ójólalög. Svo vel reyndar að mér finnst að aðrir ættu að leggja af þeim ósið.
Ég þarf endilega að fjárfesta í jóladiskunum þeirra, báðum tveim.
(Og þar með er Gamláspartý komið á rípít í ípotti huga míns.)
Jæja, ókei.
Efnisyfirlit.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)