Eitt finnst Freigátunni enn leiðinlegra en að vera heima og vera lasin. Það er að þurfa að vera heima og inni en vera næstum ekkert lasin lengur. Hún var næstum hitalaus í morgun, en er ennþá með heilmikið hor og ljótan hósta, svo við verðum í stofufangelsinu í dag. Þá er nú vissara að vera með prógramm og dreifa sér eins víða og hægt er. Núna klukkan 10 erum við búnar að:
- Elda hafragraut og borða hann í eldhúsinu.
- Horfa á Pingú í stofunni.
- Skríða aftur upp í rúm og lesa ótal bækur og fara í bangsaleik.
- Fara inn á skrifstofu og brjóta saman allan þvottinn. (Freigátan sá reyndar aðallega um að halda skemmtiatriði sem fólust í því að setja nærbuxur annarra fjölskyldumeðlima á hausinn á sér. Sem klikkar aldrei... skemmtir Móðurskipinu reyndar minna þegar hún nær í þær óhreinu.)
- Fara inn á bað og dunda okkur þar heillengi við að setja í þvottavél.
- Og nú er verið að teikna. Sem fer þannig fram að Freigátan teiknar nokkur strik með trélitunum sínum en kemur síðan til Móðurskipsins og segir "óm" sem þýðir að ég á að teikna blóm eða "all" sem þýðir að ég á að teikna kall eða "ydda" sem þýðir að ég á að ydda litinn af því að hún var að enda við að bíta af honum blýið.
Móðurskipið er þegar orðið aðframkomið. Og innan skamms þarf líklega að finna upp á einhverju nýju. Ljóst er að það þarf að fara að hella uppá ef maður ætlar að meika það fram að hádegi.
- Jæja, Freigátan leysti verkefnavalsvandan sjálf í bili, heimtaði bruðu og fá að horfa á Línu Langsokk. Vel valið og sjálfsagt.
Ég er búin að vera svaka skipulögð undanfarið. Í verkefnavikunni bjó ég til ógurlega merkilegt textaskjal í tölvunni minni þar sem ég skrifaði skilmerkilega hvað ég þyrfti að gera hvern dag. Aðallega skólatengt, og stundum líka annað. Svo hef ég bara ekkert hætt þessu. Þetta er undarlega mikil útrás fyrir einhverja röðunarfíkn.
Allavega, dagurinn í dag er svona:
8.11. fi
Ritstjórn og fræðileg skrif, 9. verkefni - Ritfregn
Baudelaire - Inngangur
Og þetta verkefni gerði ég að mestu í tímanum í gær. En ég þyrfti að fara yfir þennan inngang fyrir bókmenntasögubókina. Svo ég fæ enga laggningu með Freigátunni í dag.
Já, það er víst alveg á hreinu að það þarf að hella uppá.
Og ef Alheimurinn lofar verður Freigátan leikskólafær á morgun, svo þá verður það Bókhlaðan!
(Sem auðveldaðist yfirferðar til muna eftir að ég lagði á mig að leita að lyftunni í henni um daginn.)
8.11.07
7.11.07
Vott els is njú?

Freigátan er komin með hita. Við Rannsóknarskip skiptumst á um að skrópa í dag til að vera hjá henni. Hún er voða slöpp, litla skinnið. Með hor og hósta. Samt horfir hún á mann bænaraugum og segir: Mamma mín, út? Róló? Voða leiðinlegt að þurfa alltaf að vera að póna litla útipúkann til að vera inni. Meðfylgjandi mynd er af Gyðu og Völu vinkonu á róló með pöbbum sínum. Eins og sjá má er mikið fjör. Aðallega hjá Magga. Svo set ég líka hér mynd af Freigátunni í streptókokkunum, að leggja sig á ganginum. Og nýju hillunum, (það er reyndar erfitt að ná almennilegri mynd af þeim...
Og í viðbótarverkefni í Hagnýta rannsóknarverkefninu... tók ég að mér að vinna með kaflana úr Kóraninum sem á að vera í þessari fínu sýnisbók um bókmenntasögu sem við erum að vinna.(Eða sat uppi með... kennir mér að það borgar sig ekki alltaf að sitja aftast.)
Svitn. Um margt veit ég fátt. En um fátt færra en hið Múslimska trúarrit.
Trúlega verðum við Freigátan aftur heimasætar á morgun. Svo líklega verður lítið um bókhlöðuferð. É'v'tekki hvar þetta endar... Líklegast með einhverju læri um helgina.En eru ekki hillurnar fagrar? Mér liggur enn við yfirliði af hamingju í hvert sinn er ég lít þær, og aðrar skipulagsbreytingar sem Rannsóknarskip framdi í vetrarfríinu sínu. Ætti maður kannski að taka til á skrifstofunni á meðan litli sjúklingurinn sefur? Eða ætti maður að leggja sig?
Samviskuval...
6.11.07
Pyntingaklefi XI
Þegar ég var í hinum námunum mínum var stofa 11 í aðalbyggingunni "barn síns tíma." Sinn tími hefur líklega verið einhvertíma í kringum byggingu byggingarinnar. Vondir stólar, allt of há og mjó borð, allt geirneglt niður og lítur út eins leikhús á tímum Grikklands til forna. Ég hef aldrei sloppið heila önn við stofu 11 síðan einhvern tíma snemma í BA-inu.
Þess vegna varð ég mjög kát þegar ég sá á stundatöflunni í haust að stofa 11 var hvergi sjáanleg. Þangað til ég komst að því hvar stofa 220 í aðalbyggingunni var. Það var búið að skipta um númer á stofunni.
Það var ekki búið að skipta út helv... pyndingarbekkjunum. Og þar er ég semsagt búin að vera að sitja hagnýta rannsóknarnámskeiðið mitt. Og núna er líka búið að færa þýðingafræðina þangað.
Semsagt, 50% af öllum tímum í effing stofu 11.
Og grindverkur gefur þessu alveg nýjar víddir.
Ef eitthvað af því sem ég ætla að taka eftir áramót á að vera í þessari stofuafmán skipti ég um.
Ég tók hins vegar eftir því um daginn að það er búið að skipta um stóla í stofu 9. Þar voru alltaf ferlega þægilegir hægindastólar. Svona grænir. Það er einmitt mitt stærsta akademíska afrek að hafa komist í gegnum námskeið í Paradísarmissi Miltons (huxanlega leiðinlegasta bókmenntaverk sem skrifað hefur verið) sem var kennt í stofu 9 klukkan 8 á þriðjudagsmorgnum. Segir sína sögu um hvað Guðni Elísson er mikill kraftaverkakennari að hann gat haldið mér nógu mikið vakandi í tímum til að ég fékk 8. En þarna gátu þeir skipt um stóla.
Að lokum, smá um þýðingafræði:
Mér er alveg sama þó það séu öngvir kynvillingar lengur í Biflíunni.
En mér er líka sama hvað hver segir.
Uppá stól stendur mín kanna!
Og hananú.

Hörmungans
Barðist með Freigátuna labbandi í leikskólann í slagviðri.
Þegar þangað var komið var hún með hor um allt andlit og hóstandi eins og berklasjúklingur.
Frunsan hefur breitt úr sér og nær nú niður á höku.
Og slæmar fréttir berast víða úr kjötheimum enn eru skörð fyrir skjöldum.
Við Dugga ætlum að fara aftur að sofa og gá hvort þessi dagur vill ekki bara byrja aftur.
Ef hann gerir það ekki verður allt illt tekið út á Baudelaire og Bókhlöðunni um hádegi og Blóm illskunnar fá fyrir ferðina.

5.11.07
Tæknin stríðir
Ekki varð mér kápan úr því klæðinu að ætla að stúdjóa þáttinn minn í fyrstu tilraun. Tölvur töluðu ekki við skrár, og öfugt, og bakköppið virkaði ekki heldur. En þegar ég kom heim held ég að ég hafi komið öllu saman á skothelt form, ætla að hafa það líka á nokkrum öðrum formum til vara, svo ég verði jafnvel enn betur undirbúin næst. Held mér fari allavega að verða óhætt að láta panta annan stúdjótíma. Svo mæti ég með alltsaman á "aiff" og "wav" formum og ef það virkar ekki... ja þá verð ég að prófa eitthvað annað. Alveg vissi ég að ekki kynni góðri lukku að stýra að vera á fyrsta stúdjódeginum.
Að öðru leyti fór afmælisdagur Rannsóknarskips hið besta fram. Afmælisgjöfin hans frá okkur flotanum er reyndar ekki komin í hús þar sem ég var komin með alvarlega heimþrá eftir stúdíóævintýrið og rétt meikaði að kaupa köku. Svo komu amma Smábátsins, frænka og litli frændi í kaffi og allir borðuðu köku og Freigátan og litli frændinn fóru alveg hamförum í að leika sér.
Smábátur ku vera að lenda og Rannsóknarskip fór að sækja hann.
Í sjónvarpinu er einhver maður að hafa gaman af að láta fólk vera á nærbuxunum í bönkum. Mér finnst ég ekki sjá eða heyra neitt nema perra þessa dagana. Fréttir af perrum og allir vondir í sjónvarpsþáttum virðast vera perrar. Erum við uppi á öld perranna, eða hvað?

35!
Í dag á elskulegur eiginmaður minn 35 ára afmæli. Í tilefni afmælishelgar sinnar tók hann heimilið í allsherjaryfirhalningu í gær og bauð mér síðan út að borða fyrir formúgu. Í tilefni afmælishelgar hans gerði ég lítið annað en að hósta og frísa og stressast yfir útvarpsþættinum, með flensu og frunsu, illt í öxlinni og grindargliðnun. (Og sjaldan verið fleira að mér í einu.)
Í dag, á sjálfan afmælisdaginn, ætlar Rannsóknarskip í vinnuna sína og koma síðan heim og passa Freigátuna á meðan ég fer upp á útvarp og næ vonandi að púsla saman þættinum mínum á tveimur tímum. (Sem er eins gott að er ekki sjóvarpsþáttur. Þetta er engin smá frunsa.) Svo það verður ekkert sérstakt um dýrðir. En ég meika þó vonandi að kaupa handa honum afmælisgjöf á leiðinni heim. Og kannski köku. Annars er ég alveg eins og draugur upp úr öðrum og Freigátan er líka með ljótan hósta og þykkt hor.
Afmælisbarnið er þó allavega við hestaheilsu, enda á pensillíni og sterum. Sem er að virka ljómandi vel, ef marka má hina ljómandi dugnaðarlegu endurskipulagningu sem fór fram á heimilinu í gær.
Annars er helst í fréttum að í dag er líka síðasti í vetrarfríi hjá Rannsóknarskipi og Smábát og sá síðarnefndi kemur væntanlega heim í kvöld. Leikskóli Freigátunnar er líka lokaður í dag.
Það verður mikill áfangasigur að verða búin að koma þessum útvarpsþætti heim og saman. Ég komst að því að mig vantaði hreint ekki tónlist í hann. Ég var bara með vítlausan teljara í klippingaforritinu, svo allt var miklu lengra en ég hélt. Þannig að þátturinn er aðeins of langur, eins og er, en það fer eftir því hvað ég verð lengi að öjla út úr mér kynningum í stúdjóinum hverju ég sleppi. Og ég veit ekki hvenær hann verður á dagskrá, en síðast þegar ég vissi var ekki enn búið að spila þættina sem voru gerðir í þessum kúrsi í fyrra, og það stendur til að gera það á undan. Svo... eftir svona tvö ár?
Á morgun verðum við Freigátan svo vonandi báðar nógu hressar til að fara út úr húsi, þá ætlar hún á leikskólann og ég í bókhlöðuna og fara þar um eins og hvalavaða og finna heimildir um hann Baudelaire og aðallega Blóm illskunnar. Og gera síðan allt hitt sem er búið að sitja á hakanum. Annaðhvort það eða sitja heima og halda áfram að hósta upp lungunum. En það verður þó allavega hægt að gera það í íbúð sem er svo hrein og fín og haganlega endurskipulögð að það mætti halda að það væru að koma jól. Án þess að ég hafi gert neitt til þess.
Ég er afskaplega vel gift.

3.11.07
Back-of-a-head?
Já, við erum búin að senda Sylvíu Nótt í Júróvísjón, hví ekki Gilzenegger? (Tala nú ekki um að hafa það Gilzenegger og Barða, skemmtilega ólíklegt eyki.) Ég vil allavega sjá mannfræðikenningar Gilz messaðar yfir Evrópu. Hvernig menn geta verið Scarfs og T-shirts. Og að kúlst alls sé að vera Back-of-a-head. Ég efa ekki að þetta á eftir að valda straumhvörfum í evrópsku mann- og menningarlífi.
Annars hefði ég ekki átt að vera svona drjúg með mig í streptunum um daginn. Er að fá einhvern fjandann. Verið að reyna að berja ósómann niður með valdi, búin að éta c-vítamín eins og nammi í dag og fara í heitasta bað í heimi og er núna með hitapoka á lungunum og te. Freigátan hamast við að endurgjalda umönnun haustsins og kemur reglulega með klósettpappír og snýtir mér. Stundum líka bumbunni, enda ekkert ólíklegt að Ofurlítil Duggan sé líka með kvef.
Best að éta nú öll verkjalyf sem má og fara að sofa. Klukkan 10 á laugardaxkvöldi. Ef það klikkar gefst ég alla leið upp og lext eins og pönnukaka þar til annað kemur í ljós. En stefnan er að batna í nótt!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)